Forsíða|  Fréttir| Ljósmyndir| Um Kríuna| Tenglar| Staðsetning| Hestar til sölu| Hafa samband| Hesthús| Kráin|

Efni finnst ekki.

26.12.2011
Sveitakraín Krían
Við óskum öllum gleðilegs nýs árs og farsældar á nýju ári. Sjáumst hress á nýju ári.
Lesa meira...

6.12.2011
Hópur í jólahlaðborði um síðustu helgi
Það var hópur frá suðurnesjum sem mætti í jólahlaðboð á Kríunni um síðustu helgi.
Lesa meira...

7.11.2011
Jólahlaðborð á Kríunni
Krían verður með glæsilegt  jólahlaðborð í nóvember og desember fyrir stóra sem smáa hópa. Lágmarksfjöldi 20 manns.
Við höfum fengið til liðs við okkur Guðmund Erlendsson matreiðslumeistara sem hefur mikla reynslu í matargerð og framreiðslu og nú síðast getið sér gott orð fyrir grænmetisrétti sína sem hafa notið mikilla vinsælda, enda með þeim bestu í þeim flokki. 
Markmið okkar er að bjóða hópum sem vilja vera út af fyrir sig, njóta góðra veitinga á sanngjörnu verði þar sem lögð er alúð og fagmennska í hvern bita! 
Pantanir bókast í símum: 8997643 og 8977643 eða á www.kriumyri@internet.is

Lesa meira...

6.11.2011
Breytingar á Kríunni
Það er sífellt verið að bæta aðstöðuna á kránni eftir efnum og aðstæðum. Sólskálinn er orðinn vindheldur og nú síðast eru komnir hitablásarar á krána og héðan í frá verður engum kalt á kránni. Menn og konur geta mætt í ermalausum bol. 
Lesa meira...

13.9.2011
Markaður á Kríunni 24. september n.k.

 

Markaður  verður á Sveitakránni Kríunni laugardaginn 24 sept. frá kl. 14-17

Allir eru velkomnir að vera með sín sölupláss á svæðinu gegn vægu gjaldi.

Í fyrra komust færri að en vildu svo nú er að vera tímanlega í að panta.

Erum með góða inniaðstöðu...borð á staðnum en gott væri að þeir sem geta komi með borð undir sinn varning.

 

Heimilt er að selja eða gefa allt milli himins og jarðar, handverk, heimilisvöru, fatnað, skó, leikföng, bækur,  heimatilbúnar matvörur ss sultur, kökur eða hvaðeina sem fólki dettur í hug jafnvel lifandi dýr (nóg pláss).

Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér málin og hringja í Maríu á Kríunni í síma 5657643 eða 8997643. Netfang: kriumyri@internet.is  www.krian.is

 

Nú verða allir með í að mynda ekta markaðsstemmningu í Flóanum


Lesa meira...

Kráin á Kríumýri | 801 Selfoss | sími 8997643 / 8977643 | kriumyri@internet.is