Kráin

Við hér á Kríumýri erum með ósvikna sveitakrá sem ber nafnið Krían þar sem afbragðs aðstaða er fyrir alls kyns hópa.
Hér geta hóparnir skipulagt sína eigin dagskrá. Til staðar er hljóðkerfi, hljóðfæri s.s. gítarar, píanó, skjávarpi með stórum skjá. Möguleiki er að útvega hressar og skemmtilegar hljómsveitir úr sveitinni fyrir alla aldurshópa á vægu verði. Tilvalið að sameina vinnustaðafund og skemmtun.
Hægt er að panta mat á sanngjörnu verði allt frá súpu og salati uppí stórsteik eða bara hvað sem hópnum hugnast. Einnig geta hóparnir komið með sinn eigin mat og leigt aðstöðuna á kránni.
Dæmi um hópmatseðil:
• Ekta íslensk kjötsúpa með brauði • Grillað lambalæri með kartöflum, fersku salati og heitri sósu • Grillaðir bleikjukoddar með grænmeti, kartöflum og fersku salati • Pastaréttir - Pottréttir • Ýmis konar matarmikil salöt
Krían er staðsett rétt fyrir austan Selfoss, sjá nánari staðarlýsingu á www.krian.is
Við leggjum áherslu á heimilislegt andrúmsloft í notarlegu umhverfi og bjóðum alla velkomna í sveitina.
Hafið samband við Maríu eða Hörð í síma: 899 7643, 89 77643, 565 7643 eða á netfangið kriumyri@internet.is






|