Forsíða|  Fréttir| Ljósmyndir| Um Kríuna| Tenglar| Staðsetning| Hafa samband| Hesthús| Kráin|

Efni finnst ekki.

Fréttir





FRIÐUR FRÁ MIÐHÓPI
.
 
IS2004155060 Friður frá Miðhópi Litur: 7560 Móálóttur,mósóttur/milli- leistar(eingöngu)  Sköpulag: 7,5 - 8,0 - 7,5 - 8,5 - 8,0 - 7,5 - 8,0 - 8,5 = 8,00 Hæfileikar: 8,0 - 8,5 - 9,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 7,5 = 8,35 Aðaleinkunn: 8,21 Hægt tölt: 7,5      Hægt stökk: 7,5

Klárinn er á húsi hjá Jóhanni Ragnars á Neðra-Seli og hægt að koma með merar undir hann. Upplýsingar gefur Jakob í síma 8656356

Lesa meira...






Bíll til sölu
peugeot 306  árg. 98
upplýsingar í síma 8656356



Jónsmessuhátíð á Kríunni laugardaginn 26. júní
Miðsumarshátíð á Kríunni. Byrjað verður á að kveikja varðeld á Kríutúninu kl. 22 þar sem sungið verður og trallað undir gítarspili...boðið verður uppá smá grillnart með ölinu á mjög vægu verði...síðan mun Labbi í Glóru stíga á svið á Kríunni og halda uppi rosastemmningu fram eftir nóttu....Aðgangur á ballið kr. 1000
borgist með reiðufé....Hlakka til að sjá sem flesta.



Mikill erill undanfarna daga.
Það hefur verið mikið um hópa í mat og drykk á Kríunni undanfarna daga. Hjartavernd, Grunnskóli Hveragerðis, Valla skóli og fleiri. Veður hefur verið með eindæmum gott undanfarna daga og sumir farnir að byðja um vætu fyrir gróðurinn.



Álmaðurinn.
Þann 27. maí varð vertinn 55 ára og í tilefni af því var þreytt þríþraut sem saman stóð af 1000 metra sundi sem fór fram í sundlaug NLFÍ. Þar næst var hjólað 35,5 km leið úr Hveragerði niður Ölfusið og yfir Ósabrúna og í átt að Selfossi. Síðan voru hlaupnir 6, 2 km eftir Votmúlavegi og í hlaðið framan við Kríuna. Alls tóku 10 þátt í þrautinni en einn hjólaði og hljóp. Fyrir keppnina bauð Náttúrustofnun NFLÍ keppendum í dýrindis hádegismat
Lesa meira...



Nýtt folald
Þann 19. maí fæddist merfolald undan Rösk frá Hala og Hvessi frá Ásbrú. Hvessir er undan Sömbu  og Þóroddi Rösk er undan Þokkasystkinum. Rautt folald með myndarlega stjörnu.



Selósmenn í árlegri grillreið
Þeir voru mættir Selósmenn í sína árlegu grillreið á Kríuna. Það lék við þá veðrið eins og öll hin árin sem
þeir hafa komið.

Lesa meira...



Traffík í blíðunni.
Það var talsverð traffík af hestamönnum á Kríuna á laugardaginn síðast liðinn. Það skein maísól inn um gluggana á kránni þennan laugardaginn. Nú er sumarið komið með hlýju og vætu.
Lesa meira...



Allt klárt.
Það var lögð lokahönd á gerðissmíðina í dag en það gekk ekki alveg áfallalaust að koma upp gerðinu því að við mokstur fyrir gerðinu kostaði símakapal og vatnsrör í sundur. Með góðum liðsauka tókst að koma því öllu í samt lag.
Lesa meira...



Nýtt gestagerði við Kríuna.
Loksins kom að því að sett var upp gestagerði fyrir ríðandi gesti Kríunnar. Nú geta knaparnir horft á fáka sína um leið og þeir njóta veitinga  í sólskálanum framan við krána.
Lesa meira...



Óska eftir að þjóna merum í sumar.
Þessir tveir óska eftir að þjóna merum í sumar gegn hagabeit.
Upplýsingar á staðnum. 8977643 .Smellið á lesið meira til að sjá fleiri myndir.

Lesa meira...



Eyjafjalllajökull
Gosið viirðist héðan frá hafa minnkað verulega.
Lesa meira...



Thanks Chuck !
Það var ágætlega sóttir tónleikarnir hjá ameríkananum Chuck Suchy á föstudagskvöld, hátt á þriðja tug manna. Þarna fór reyndur músikant enda hefur hann gefið út diska á frögurra ár  fresti allt frá því 1986 og til 2008.
Að loknum söng bragðaði hann á staupi af íslensku brennivíni og fannst gott og fékk sér annað.



Föstudagsdvöldið 16. apríl. Hljómsveitin Gæðablóð skemmtir . Chuck Suchy djammar með.Chuck Suchy after Pulling a Calf by speakingoffaith. 
Bandaríski þjólagasöngvarinn Chuck Suchy mætir á Kríuna og ætlað að djamma með Gæðablóði
á  föstudagskvöld.  Hann er starfandi nautgripabóndi í norður Dakóda. Hann hefur gefið út diska með tónlist sinni allt frá 1986 fram til 2008.  Skemmtun hefst kl. 22.00  Aðgangur kr. 1000,-

Lesa meira...



Takk Sleipnismenn og aðrir fyrir góðar viðtökur á Grilldegi Kríunnar
Það mættu upp undir 70 manns í grill á Kríunni sl. laugardag. Veðrið var ef til vill ekki upp  á það allra besta , rigning og vindur en hiti á bilinu 10 -12 stig. Menn létu veðrið ekki á sig fá og riðu á móti vindi og skúraveðri.
Stemmningin var hrint út sagt frábær. Þetta verður örugglega endurtekið.

Siðar um kvöldið mætti  Labbi fyrrum Glórubóndi  og hélt uppi þvílíku stuði fram eftir kvöldi og fram á nótt. Húsfyllir og menn skemmtu sér konunglega.

Lesa meira...



GRILLDAGUR Á KRÍUNNI.

Sleipnisfélagar og aðrir hestamenn

Næsta laugardag þann 10. apríl verður sannkallaður hátíðisdagur hestamanna.  Vertarnir á Kríunni ætla að kveikja upp í grillinu og vera með gómætan grillmat í boði á milli klukkan 16 og 19. Tilvalin laugardagsreiðtúr fyrir unga sem aldna.
Verð á grillmat er stillt í hóf eða kr. 1000.- skammturinn.

Um kvöldið verður svo hugguleg stemming á Kríunni þegar Labbi fyrrum Glórubóndi  mætir ásamt syni á fornar slóðir um tíuleytið og spilar og syngur eins og honum einum er lagið fram eftir kvöldi.

Hestamenn nú skulum við nota tækifærið og gera okkur glaðan dag saman. 

Vel væri þegið ef þeir sem ákveðnir eru í að mæta í grillið tilkynni þátttöku með sms eða símtali í síma 897-7643 eða í tölvupósti á kriumyri@internet.is  til að hjálpa vertunum að áætla innkaup.

Nánari upplýsingar og fréttir verða í vikunni á krian.is

 

 

Sing along á Kríunni með Labba

Labbi í Glóru mætir með gítarinn á Kríuna laugardagskvöldið 10. apríl og heldur uppi skemmtilegri stemmingu frá klukkan 10 og fram eftir kvöldi.  Notaleg pöbbastemming með góðri tónlist. Nú er tækifæri til að heyra Labba taka öll gömlu góðu lögin og tralla með.

 Aðganseyrir kr. 1000.-




Tilboð óskast.
Þessir tveir myndarlegu graðfolar eru til sölu og er óskað tilboða í hvorn fyrir sig.
Til greina kemur að lána þá í notkun í merar í sumar gegn hagagöngu 
fáist ekki viðunandi tilboð í folana.
Nánari upplýsingar fást á staðnum  eða í síma 8977643

Lesa meira...



ýmislegt óvænt gerist 
Þeir komu að lokuðum dyrum á Kríunni hestamennirnir sem mættir voru til að fá sér hressingu. Vertinn þurfti að hendast af stað í flugslys í námunda við Auðsholt. svona er lífið í sveitinni !



Framundan á Kríukránni.
Það verður opið alla Páskahátíðina og verða heitir og kaldir drykkir á boðstólum og eitthvað til að bíta í svo sem samlokur og vöfflur og eitthvað fleira. Við stöndum vaktina frá  kl 15.00 dag hvern yfir hátíðarnar. Ef einhver er fyrr á ferðinni sakar ekki að slá á þráðinn  í gsm símana(8977643 / 8997643) og athuga hvort einhver er nálægur.

Það verður grilldagur á Kríunni þann 10. apríl . Þá geta menn komið ríðandi og komið hestum fyrir í gott yfirlæti og gætt sér á ódýrum en ljúffengum grillrétti. Nánar auglýst síðar.



Og beint í kjölfarið. !
Og skömmu eftir að hrossaræktarfélag úr Austur Landeyjum voru farnir komu félagar úr hestamannafélaginu Sörla í Hafnarfirði sem voru á ferð um svæðið og fengu sér í svanginn á Kríunni.
 Þeir vísiteruðu nokkur hrossabú á suðurlandi og kynntu sér hvað helst væri á döfinni hjá þeim.

Lesa meira...



Hrossaræktarfélag Austur-Landeyja
Á leið sinni um Flóann kíktu félagar í hrossaræktarfélagi Austur-Landeyja við á Kríunni og fengu sér Kjötsúpu og heimabakað brauð.
Lesa meira...



Ræktunarfélagið Hákon.
Aðalfundur Ræktunarfélagsins um stóðhestinn Hákon Álfsson var haldið á Kríunni á laugardagskvöld.
Eftir að  hópurinn hafði borðað grillsteik hófst aðalfundur og var farið í gegnum stöðu mála. Hesturinn er á Hólaborg og verður þar til tamning hefst á hausti komandi. Það var mál manna að hestur þessi væri stór og fjallmyndarlegur og nokkru stærri en pabbinn. Ekki vantar heldur hreyfingarnar. Sem sagt spennandi tímar framundan.

Lesa meira...



Fyrsti vorboðinn
Það eru merki um að vorið er í nánd þegar hestamenn fara lengja túrana og mæta á Kríuna til þess að fá sér hressingu.
Lesa meira...



Kjötsúpa og heitt ný heimabakað brauð með smjöri.
Þaðvoru félagar úr Hrossaræktarfélagi Hraungerðishrepps sem fengu sér hressingu áður en þeir heldu að Hólum til Steindórs og síðan áfram á hestaþjálfunarstöðina að Hólaborg.
Lesa meira...



Nautgriparæktarfélag Hraungerðishrepps.
Það var kjötsúpa með heimabökuðu brauði beint úr bökunarofninum sem var á borðum þegar sveitungarnir mættu á Kríuna. Þeir voru í árlegri ferð um Hraungerðishrepp í upplýsingaleit um hvað helst væri á döfinni í nautgriparækt.
Lesa meira...



Hitakútur á Kríunni laugardaginn 27. febrúar.
HITAKÚTUR. Útflutningsball 27. feb. á Kríunni. Hitakútur og HúrríGúrrí í dúndur stuði. Kveðjum þá gítarleikarann okkar, Sindra Kárason. Sindri flytur í byrjun mars til Manchester til að háskólamennta sig í hljóðvinnslu... (Þess ber að geta að hann heldur samt með Liverpool). Öll innkoma mun renna í námssjóð Sindra.
Lesa meira...



Þorri
Þorralegur þessi, Kalli í Steinskoti að bragða á Þorramatnum á Kríunni. Miðað við svipinn þá bragðaðist maturinn ágætlega. Og svo kom ískalt brennivín með hákarlinum.



Til sölu
Opel Vectra-B-Caravan árg 98 1.6L sjsk. ekinn 205 þús.
Verð 150 þúsund.  Góður bíll. / SELDUR

Upplýsingar í síma 8977643

Lesa meira...



ÚTLAGAR á Kríunni á laugardagskvöld
Hljómsveitin Útlagar skemmta  á Kríukránni  laugardagskvöldið 6 febrúar.

Útlagarnir leika ekta country og vestern tónlist  þeirra fóstbræðra Johny Cash, Willie Nelson, Waylon Jennings og ýmissa kántrý rokkbolta sem tilheyrðu svokölluðum útlagageira country og westerntónlistar. Sem sagt Kántrískotin rokktónlist á Kríunni.
Aðgangseyrir kr 500 í reiðufé.
Aldurstakmark 20 ár og viðmiðunaraldur 25+



Horft á boltann í beinni.
Það var góður hópur sem mætti í súpu og heimabakað brauð og hofrði á ísland leika við Frakka í beinni á Kríunni.



Óvenjulegur vetur.
Það var vorlegt á þessum sunnudagsmorgni ,sólskin og 5 stiga hiti og logn. Það fer vel um útiganginn þegar svona viðrar.  Ekki nema nokkrir dagar í þorrann og sjá má græn grös allt í kringum bæinn á Kríumýri.
Lesa meira...



Heimatilbúin tónlistaratriði .
Viðbragðsaðilar komu saman á Kríunni og héldu nýársfagnað.
Það voru heimatilbúin tónlistaratrið þar sem Jóhanna og Guðmundur fóru mikinn í söng og spili. Flottur dúett þar á ferðinni. Hver veit nema að þetta verði orðið tríó eða jafnvel kvartett á næsta ári ?
Það voru 28 manns sem mættu á þennan fyrsta nýársfagnað viðbragðsaðila á Selfosssvæðinu. Framhaldið hlýtur að lofa góðu þar sem ákveðið var að halda uppákomuna með mjög stuttum fyrirvara.

Lesa meira...



Flugeldasýning!
Það er ekki skotið flugeldum á Kríumýri af eðlilegum ástæðum þar sem útigangur er allt um kring.
En útsýni yfir Selfoss af hlaðinu á Kríumýri er aldeilis frábært eins og sjá má af myndum sem teknar voru á Gamlárskvöld á húddinu á heimilisbílnum. 

Lesa meira...



Nýársfagnaður viðbragðsaðila á Selfossi

Nýársfagnaður viðbragðsaðila á Selfossi verður haldinn á Kríunni laugardaginn 9. janúar 2010 kl. 21.00. Ný hljómsveit úr röðum viðbragðsaðila kemur fram.  Tilboð á barnum. 500 kall inn og einn kaldur í hurðinni.



Fyrstu hross í vetrarhirðingu komin á hús.
Fyrstu hrossin eru komin á hús þennan veturinn.  Þau koma inn í mjög góðu standi, feldurinn alveg laus við hnjóska.
Þegar vel viðrar tekur fólk seinna inn og nýtir vetrarblíðuna eins lengi og hægt er.



Krían í Jólaljósum
Krían er skrýdd Jólaljósum í fyrsta sinn og lýsir upp í skammdeginu og snjóleysinu.




Fjórða árið í röð
Þetta er í fjórða sinn á jafnmörgum árum sem stuðboltarnir úr Mosfellsbænum mæta á Kríuna í  árlegri stuðboltaferð um suðurland. Þeir hefja ferðina snemma dags og fara eitthvert og snæða miðdegisverð og að því loknu halda þeir beina leið á Kríuna og taka á bæði í söng og drykk.
Lesa meira...



Íslenskir flugvirkjar.
Nokkrir félagar úr flugvirkjafélagi íslands mættu á Kríuna í lamba grillsteik. Þeim munaði ekki um að sporðrenna eins og 20 kílóum af úrvals hreinu lambakjöti ásamt meðlæti.
Lesa meira...



Úrvals íslenskar viðarspænir til sölu á Kríunni í vetur.Við verðum með til sölu úrvals íslenskar  viðarspænir framleiddar úr íslenskum skógi. Framlag til sparnaðar á gjaldeyri. Spænirnar eru í 25 kg endurnýtanlegum sekkjum.



Tveir bilaðir/ báðir bílarnir eru seldir !!!!!!
Nissan Terrano II árg. 1995 diesel með bilaðan gírkassa  Verð 90.000,-

Opel Vectra 2.0 i sjálfsk árg 1994 með bilaða vél.  Verð 30.000-

Lesa meira...



Brúðkaup
Það var haldin brúðkaupsveisla  laugardaginn 5 sept síðastliðinn á Kríunni og fór sjálf athöfnin fram í skálanum faman við staðinn. Það var fulltrúi sýslumannsins á Selfossi sem sem gaf þau Beate Harasim og Davíð águst Davíðsson  saman í hjónaband.
Þess má til gamans geta að þetta er í fyrsta sinn sem brúðkaup er haldið á Kríunni og eins er þetta í fyrsta sinn sem sýslufulltrúinn gefur fólk saman í hjónaband.

Lesa meira...



Goði Frá Einholti - TIL SÖLU
Goði IS1999188403 frá Einholti. Undan Streng frá Einholti. Mjög góður alhliða hestur.

Verð 550.000kr

Áhugasamir hafa samband við Hörð í síma 897-7643


Lesa meira...



Sumarferð húsbænda á Kríumýri um Hornafjörð
Nokkrar myndir úr hestaferð sumarsins. Að þessu sinni var riðið um sveitir Hornarfjarðar. Riði var frá Suðursveit ,Mýrar, Nesjasveit og síðast í Lónssveitinni handan Almannaskarðs
Lesa meira...



Lang sætasti hópurinn
Þetta er án vafa lang sætasti hópur af reiðmönnum sem mætt hafa á Kríuna. 
Hér voru á ferð Reiðskólahópur  sem ákvað að lengja túrinn að þessu sinni og riðu frá Votmúla og að Kríunni.
Krakkarnir nýttu sér aðstöðuna í sólskálanum við Kríuna og fengu sér nesti á meðan hestarnir hvíldu sig í hestagerðinu við hesthúsið.

Lesa meira...



Húsfrúin á Kríumýri
Vertinn á Kríunni hún María átti afmæli á dögunum og í tilefni dagssins fór hún til útreiðar á bökkum Hvítár ásamt mágkonu sinni henni Siggu í hallanda og systur sinni Jakobínu.
Lesa meira...



Músíkkantar á ferð
Það var verkfræðideild Orkuveitu Reykjavíkur sem var í árlegri skemmtiferð sem áði á Kríunni.
Það hafa ekki áður komið hópur á Kríuna áður jafn vel vopnaðir hljóðfærum og þeir hjá Orkuveitunni.
Það voru tveirf gítarar, fiðla og maldólín sem framleiddu tónlistina. Mátti heyra kötukvæði María María og fleiri lög við undirleik þessar hljóðfæra.

Lesa meira...



ÆTTARMÓT
Það voru niðjar Bjarna Jónatanssonar sem komu saman á Kríunni og héldu ættarmót. Þar  voru saman komin um eitthundrað afkomendur Bjarna.
Lesa meira...



Riðið í Þykkvabæinn.
Húsbændur á Kríumýri riðu ásamt fleira fólki á svæðinu riðu árlegan reiðtúr niður í Þykkvabæ þar sem Ella og Júlli tóku á móti gestum. Þau eru búin að koma sér vel fyrir  á bökkum ytri Rangár. Sumarhús, reiðhöll ásamt hesthúsi. Útreiðarleiðir eru eins og þær gerast bestar á svæðinu, harðar sandgötur hvert sem farið er.
Lesa meira...



47 ára útskriftarafmæli
Þessar glæsilegu konur héldu upp á 47 ára útskriftarafmæli úr Húsmæðraskólanum á Ísafirði. 
Þær fengu sér að sjálfsögðu lambagrill í tilefni dagsins.

Lesa meira...



Norskir geðlæknar á ferð um landið
Það voru norskir læknar sem höfðu verið að ferð um landið undanffarna daga sem enduðu túrin í lambagrillsteik á Kríunni. Þeir höfðu á orði eftir að máltíðina að þeir tengdu helst bragðið á lambinu við norska villibráð. Þeir voru yfir sig hrifnir af Íslensku lambakjöti
Lesa meira...



Árleg reið að Ragnheiðarstöðum
Nokkrir Sörlafélagar með Helga Jón Harðar í fararbroddi riðu á Ragnheiðarstaði eftir að hafa fengið Kjötsúpu á Kríunni og eitthvað kallt og gott að drekka. 


Lesa meira...



Sonur Friðs.
Hestfolald undan Friði frá  Miðhópi og Lukku frá Gaulverjabæ fæddist fyrir um klukkustund hjá Siggu Harðar í Hallanda
Lesa meira...



Fyrsta folald vorsins á Kríumýri
Þetta fallega merfolald fæddist í dag sunnudaginn 17 maí. mamman er Rösk frá Hala og pabbinn er Friður frá Miðhópi Huginnssonur frá Haga.
Lesa meira...



Flottar GR konur
Það var glæsilegur hópur af GR konum sem komu í kjötsúpu á Kríuna eftir vel heppnað golfmót á Þorlákshafnargolfvellinum.
Eftir kjötsúpuátið fór fram verðlaunaafhending.
Þær tóku lagið við undirleik Jóns Karls píanó- og golfleikara.

Lesa meira...



Karnivalstemmning
Það var sannkölluð karnivalstemmning í óvissuferð hjá starfsmönnum öldrunarheimilisins Sóltúns í Reykjavík sem mætti í grillveislu á Kríuna á föstudagskvöldið.
Lesa meira...



Tónn frá Austurkoti
Haldinn var aðalfundur félags eigenda um stóðhestinn Tón frá Austurkoti.  Tónn er undan Kletti frá Hvammi.
Tónn er bráðlaglegur brúnskjóttur fjögurra vetra gamall og svo virðist hann vera bráðflinkur eins og sjá mátti á myndbandi sem sýnt var á fundinum.

Lesa meira...



Vorgrillreið Sleipnis og Kríunnar.
Það var riðið með Hvítánni og að Ármóti í sólbjörtu en svölu vorveðri. Það voru á milli 10 og 15 manns sem tóku þátt í reiðinni í þessari fyristu Vorgrillreið. Að lokinni reið ýmist eftir hestaskipti eð hvort menn héldu áfram á sömu hestum var haldið að Kríunni þar sem beið þeirra Marinerað lambalæri í piparostasveppasólu ásamt meðlæti. Það voru 20 mann sem mættu í grillið og gerðu allir góðan róm að matnum. 

Menn voru á því að halda yrði aðra grillreið að ári.

Lesa meira...



Vorgrillreið Sleipnis og Kríunnar á laugardag kl. 1500
Sleipnir stendur fyrir grillreið þar sem farinn verður hringur og komið við á Kríunni þar sem bíður grillað lambalæri í piparostasveppasósu ásamt meðlæti á kr 2500 pr mann. Þeir sem áhuga hafa á að borða eru beðnir að láta vita í síma 8977643  hjá Herði. Það er góð veðurspá fyrir laugardaginn.



Bætt aðstaða
Smám saman lagast aðstaðan við Kríuna og ættu gestir að geta notið aðstöðunnar utandyra  þó dropar falli úr lofti.
Lesa meira...



Smalahundadeild Árnessýslu
Það var haldin fræðslufundur á vegum smalahundadeildar Árnessýslu á Kríunni á fimmtudagskvöld.
Ekki er langt síðan að stofnfundur var haldinn á Hestakránni á dögunum. Það mættu fimmtán manns hlýddu á og sáu fræðsluefni sem sýnt var í gegnum myndvarpa.
 Á meðaðn á fundinum stóð var nokkuð um hestamenn sem mættu og sátu í blíðviðrinu fyrir utan og nutu góðra drykkja.

Lesa meira...



FULLKOMIÐ !!
Svona á að grilla, ölítítið bleikt í miðjunni og þá verður það eins mjúkt og það getur orðið.

Það voru hressir rútubílstjórar sem nýtttu sér aðstöðuna á Kríunni og fengu að grilla eigið kjöt sem þeir komu með sér.

Þeir voru einnig að kanna " aðstöðuna" á staðnum ef þeir væru á ferðinni með farþega á sumri komandi....

Lesa meira...



Stjórnunarstríð
Þessir tveir höfðingjar,annar rúmlega 20 vetra ættaður frá Skúla í Skarði Sleipnir að nafni og hinn lítillega eldri ættaður að vestan og þarf ekki kynningar við, tókust á um hvor hefði stjórnina.
Það fór svo að sá eldri hafði betur.

Lesa meira...



Hrossaræktarfélag Biskupstungna
Það var líflegt á Kríunni á laugardag í blíðskapar vorveðri.  Hestamenn voru iðnir við útreiðar og riðu í flokkum á Kríuna og fengu sér hressingu.


 Um kvöldmatarleitið mætti Hrossaræktarfélag Biskupstungna í kvöldmat og snæddu klassíst lamb að hætti Kríunnar.

Seinna um kvöldið komu rútukálfur  sambland af Dalamönnum Barðstrendingum og Selfyssingum í heimsókn.

Lesa meira...



Rótary úr Kópavogi á ferð.
Rótaryklúbburinn í Kópavogi voru á ferð um suðurland og snæddu kvöldverð á Kríunni. Það var lambalæri í aðalrétt og Skyrterta í eftirrétt. Einni frúnni varð að orði eftir máltíðina: " Ég get sagt ykkur það að ég hef eldað lambalæri í yfir sextíu ár en þetta lamb sem ég var að borða er það besta sem ég hef smakkað". TAKK FYRIR ÞAÐ!
Lesa meira...



Nær fullt hesthús.
Það eru um þessar mundir einungis laus 3 pláss í Hesthúsi Kríunnar.  Það var heldur seinna að fyllast húsið nú í vetur sem skýrist eflaust af "ástandinu". Eftir tæplega halfan mánuð losna 6 pláss.



Landbúnaðarháskólanemar frá Hvanneyri í Kjötsúpu
Á fimmta tug nema úr Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri komu við á Kríunni og fengu sér kjötsúpu á ferð þeirra um suðurland s.l föstudagskvöld.  Bráðskemmtilegir krakkar. Kjötsúpan fékk hæstu einkunn.  Næsti áfangastaður hjá þeim var Ölvisholt til þess að skoða brugghúsið.

Lesa meira...



Bryndís hélt tvítugsafmælisveizlu á Kríunni.
Það var heljarinnar afmælispartý á Kríunni á föstudagsdvöldið. Bryndís Oddsdóttir frá Stöðufelli hélt vinum sínum og ættmennum veizlu þar sem hljómsveitin ALLRA VEÐRA VON léku undir dansi fram á nótt.

Lesa meira...



Rjómavöfflur um helgar.
Það voru bakaðar vöfflur á laugardag og þær bornar fram með rabbarbarasultu og ekta rjóma. 
Það var sannkölluð vorblíða þennan dag og því var upplagt að athuga hvort sleipnismenn hefðu hug á ríða í blíðunni og fá sér t.d. rjúkandi heitt kaffi og rjómavöfflur.
Ef og þegar vel viðrar um helgar verða bakaðar vöfflur fyrir ríðandi, gangandi og akandi.



Fjallhressar Mánakonur á ferð.
Þær voru hressar konurnar úr Hestamannafélaginu Mána í Keflavík sem voru í árlegri ferð um suðurlandið. Þetta er þeirra 9. ferð og að þessu sinni komu þær við á Kríunni og fengu sér rjómaostasveppasúpu með heimabökuðu brauði beint úr ofninum að hætti maríu....
Lesa meira...



Blesi í léttri sundþjálfun hjá Sundhestum
Hann blesi minn 5 vetra rúmlega bandvanur foli er í léttri sundþjálfun hjá  Sundhestum.

Þessi hestur er svolítið viðkvæmur og hafði lent í smá stressi í tamningu og því sendi ég hann í sundþjálfun til þess að gera hann auðveldari í meðförum.
Ég hafði áður sent fullorðinn hest sem var alltaf stressaður í sund til Jakobs hjá Sundhestum . Sá hestur stórlagaðist.
Blesi hefur nú  verið í rúma viku í sundi og sést strax munur á hestinum, allur rólegri og líður betur í kringum manninn. 

Lesa meira...



Það fyllist hratt hesthúsið þessa dagana.
Undanfarna daga hafa bæst við folöld og hross í hirðingu í Hesthús Kríunnar og eru núna einungis 8 stíur lausar.


Lesa meira...



Fjölgar í folaldastóðinu
Það fjölgar smám saman í folaldastóðinu í hesthúsinu.  Ennþá eru næg pláss laus fyrir folöld.
Lesa meira...



Reiðtúrarnir farnir að lengjast
Þeir eru farnir að lengjast reiðtúrarnir úr heshúsahverfinu á Selfossi.  Fyrstu hóparnir eru mættir á Kríuna á þessu ári.  Þessi hópur staldraði dágóða stund í blíðviðrinu sl. laugardag og þáði léttar veitingar. á Kríunni . Tvímælalaust besta útreiðarveðrið á þessu ári.
Lesa meira...



Graðhestapláss
Þessi myndarlegi graðhestur er einn þeirra sem gista hestahótel  Kríunnar. Ennþá eru laus pláss fyrir 3 graðhesta. Einnig laust fyrir folöld.



Inn í nútímann
Kríumýri og Glóra fá 3ja fasa rafmagn á næstu dögum. Það má segja að nútíminn sé smám saman að færast yfir gamla Hraungerðishrepp sem nú heitir Flóahreppur eftir sameiningu við Gaulverja og Villingaholtshrepp.  
Lesa meira...



Síðastliðin helgi.
Það var líflegt  um síðastliðna helgi á kránni. Á  föstudagskvöld Var haldin afmælisveisla til heiðurs Rúnari Magnússyni í Súluholti.  Rúnar varð þrítugur á dögunum en hafði ekki í hyggju að halda neitt sérstaklega upp á þennan áfanga.  Sveitungarnir vinir og ættmenni hans voru ekki alveg á því að sleppa honum við það því þeir stilltu upp hljómsveit og skelltu upp heljarinnar balli á Kríunni og  svo var karlinn sóttur. Þessi fagnaður entist  langt fram á nótt.   Á laugardagskvöld..
Lesa meira...



Í áttina að Súluholti
Úti og innihross að spóka sig í vetrarsólinni. Vertinn hefur stundað útreiðar í vetrarfríi undanfarnar 2 vikur. Það hefur viðrað þokkalega á milli élja sem nýzt hefur til tamninga.

Súluhiltingar og sveitungar þeirra  mæta á Kríuna í kvöld (föstudag) með gítar og ætla að taka svolítið á því.

Lesa meira...



Frábært afmælispartý
Það var gríðarlega flott stemmning  í afmælispartýinu hjá Jóa Jóhanns sem lifði langt fram á nótt og eða öllu heldur fram á morgun. Það var sannkölluð súpergrúppa sem lék lengst af fyrir dansi og þegar líða fór á nóottina breyttist hljómsveitaskipanin og sáust hinir ýmsustu söngvarar á sviðinu eins og myndir sýna glöggt.
Lesa meira...



Afmælisæfingin.
Hún gekk vel afmælisæfingin hjá Jóanum í gærkvöld.  Jarpi sjarmörinn tók nokkur lög við undirleik Hitakútsins. Strákurinn er líka góður söngvari.
Þá er allt orðið klárt fyrir afmælið og verður margt um manninn að sögn afmælisbarnsins.



Sjarmatröllið hann Jói verður þrítugur .

Sjarmatröllið og labbakúturinn Jói verður þrítugur föstudaginn 9. janúar og af því tilefni býður hann vinum sínum og fjölskyldu að fagna með sér laugardaginn 10. janúar klukkan 21:00
Jói er meðlimur í hljósveitinni Hitakútur, frá Hveragerði, sem hefur spilað á Kríunni í nokkur skipti og samstarfsmaður vertans á Kríunni til nokkurra ára. Í tilefni dagsins var sett saman hljómsveit með nokkrum vel völdum poppurum í tónlistarlífinu og má þar nefna Gunnar Ólason í Skítamótal, Heimi Eyvindar og Þórir í Á móti sól, Gassi í Zúuber á FM og Júlíús Jóhanns fyrrum Skítamóralsmeðlim. Drengirnir í Hitakút verða með þeim til halds og trausts allt kvöldið.



Gamlársdagsreið Kríunnar.
Á morgun gamlársdag ætlar heimilisfólkið á Kríumýri að efna til gamlársdagsreiðar með það að markmiði að gera þetta að árlegri hefð. Lagt verður af stað frá Kríunni  og riðið inn í hesthúsahverfi á Selfossi til móts við hestamenn þar og væntanlega riðið á Kríuna til baka.
Lesa meira...



Síðastliðin helgi á Kríunni.
Hljómsveitin Gegndrepa hélt ball á Kríunni síðastliðinn föstudag.  Það  voru á milli 40 - 50 manns sem sóttu ballið þó svo að Sálin væri að spila á Selfossi.
Þeir segja strákarnir í hljómsveitinni að það sé yfirleitt úrhellis rigning eða snjókoma þegar þeir eru að spila á balli.  Það rigndi svolítið á meðan á ballinu stóð en svo stytti upp eins og alltaf á endanum.

Folöld og tryppi eru farin að tínast inn á Folalda og tryppahótelið á Kríunni. Þau eru á eðlilegum tíma þetta árið sem er i endaðan desember og fram í miðjan janúar. Á þessum tíma í fyrra var allt orðið fullt enda tíðin með eindæmum slæm, rigning frá lok ágúst til 20. desember og kaf snjór eftir það.



Skatan bragðaðist afbragðs vel.
Skatan sem borina var á borð að þessu sinni var afbragðs góð.  Hún var passlega kæst en þó voru bitar innanum sem nánast létu innankinnaskinn flagna. Að þessu sinni kláraðist skatan ekki alveg og því ekki ólíklegt að haldin verði önnur skötuveisla í kringum þorrann.



GLEÐILEG JÓL
KRÍAN ÓSKAR ÖLLUM GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI.



SKATA Á ÞORLÁKSMESSU Á KRÍUNNI.
Það verður Þorláksmessuskata á Kríunni 23. desember n.k.  frá kl. 12.00  -  15.00.
Vestfirskur  hnoðmör
Verð: kr. 1,900,- fyrir fullorðna og kr. 500,- fyrir börn undir 13 ára

Ef einhverjir kæmu ríðandi á Kríuna er nóg pláss fyrir hross  í hesthúsinu á meðan borðað er.
 



Mikið var gott að hann var gamall en ekki nýr
Mitt fyrsta verk  í lok síðustu vaktatarnar og fjögurra daga frítarnar framundan var að taka hrossin á hús. Fríið ætlaði ég að nota til að járna öll tryppin mín  átta talsins til að geta byrjað að þjálfa þau......
Lesa meira...



Hross tekin á hús.
Fyrstu hross þessa vetrar voru tekin á hús í dag. Það eru verðandi hestefni sem tekin eru inn  fyrstu, ásamt nokkrum tryppum sem þegar hafa tryggt sér pláss í vetur.
Lesa meira...



Stelpurnar á Fossheimum héldu Jólahlaðborð á Kríunni
Það var Jólastemmning á Kríunni Þegar starfsmenn Hsu, á Hossheimum héldu Jólahlaðborð föstudaginn 5. des.


Lesa meira...



Svona líta þeir út í lit !
Hitakúturinn flottur á kríunni á föstudaginn síðast liðinn.  Þeir eru með flott stuð prógramm. Það voru á milli 40-50 mann sem sóttu ballið  sem telst nokkuð gott í kreppunni og í lok manaðar og bráðum að koma jól.
Lesa meira...



Hitakútur á Kríunni.
Loksins! Loksins!
Ball á Kríunni föstudagskvöldið  28 nóv.
Hljómsveitin Hitakútur heldur uppi stanslausu stuði fram eftir nóttu
Aðgangseyrir aðeins 1000 iskr.
Tilboð á barnum

Lesa meira...



Stórafmæli á Kríunni
Hún Helga Flosa hélt uppá 30 ára afmælið sitt á laugardagskvöld á kríunni og hélt gestum sínum veglega veislu.  Hljómsveit lék fyrir dansi fram eftir kvöldi en afmælisbarnið á einn af meðlimum sveitarinnar, þann hárprúða.
Lesa meira...



Hrikalega hressir og skemmtilegir
Þeir eru hrikalega hressir og skemmtilegir Mosfellingarnir sem mættu á Kríuna á laugardaginn  í sinni árlegu óvissuferð um sveitir suðurlands.  Þetta er í annað sinn sem þeir heiðra okkur með komu sinni á Kríuna.
Að þessu sinni fóru þeir á Nesjavelli þar sem þeir fengu sér gott að borða og rétt náðu að klára matinn því þeim lá svo á að komast á Kríuna til að slett ærlega úr klaufunum.

Lesa meira...



Lappi frá Bár.
Loksins náðist höfuðpaurinn  úr " Sögunni úr sveitinni" á mynd í einni af  könnunarferðum ástarinnar. Hundarnir á Bár eru alltaf tveir í för því yngri hundurinn er að læra af meistaranum.
Það haf akomið sex afkvæmi út úr þessum ferðum þeirra félaga í Kríumýri. Þessir hvolpar hafa dreifst um suðurlandið allt frá Hellu og austur í Vík.

Lesa meira...



Geymslupláss fyrir Felli og hjólhýsi
Getum tekið við nokkrum hýsum til geymslu í vetur.



Tekið inn á hús
Það verður tekið inn á hús í byrjun desember, folöld,tryppi graðhestar og reiðhestar.
Ef veður verða válind þá er hægt að taka fyrr inn.
'i fyrra var tekið inn í nóvember því þá var veður einstaklega...

Lesa meira...



Píluspjaldið komið upp á vegg.
Allt klárt.  Þá er bara að skjóta sig inn og byrja að telja niður í þjúhundruðogeinum eða fimmhundruðogeinum....



Pílukast og ískaldur
Það er komið alvöru Dart-píluspjald og pílur á Kríuna tilbúið til afnota fyrir gesti kráarinnar.

Vertinn var í heimsókn hjá Erlingi í Hvítárhestum nú fyrir nokkru. Tal barst að Kríunni og spurði Elli hvort ekki væri sniðugt að setja upp píluspjald á kránni. Vertinn sagðist einmitt vera á leiðinni að kaupa spjald og pílur  fyrir gesti kráarinnar. Þá hljóp  Elli inn eftir hesthúsinu og inn í kaffistofu og kom til baka með  forláta Dart-píluspjald í fanginu og sagði: Settu þetta upp!

Lesa meira...



Vinnustaðahópar á ferð
Á þessum tíma er árstíma eru vinnustaðahópar mikið á ferðinni. Einn slíkur var á ferð í lok september.
Örn Árnason spaugstofumaður sá um að skemmta hópnum. Eftir mikil hlátursköll hófst skeifukastkeppni þar sem krýndur var skeifukastmeistari hópssins og hlaut hann áritaðan bikar að launum.

Lesa meira...


Kráin á Kríumýri | 801 Selfoss | sími 8997643 / 8977643 | kriumyri@internet.is